Guðdómlegt heitt súkkulaði með chaga – UPPSKRIFT

Chaga sveppirnir frá Erbology koma lífrænir beint úr iðrum Finnlands. Chaga er stundum kallaður konungur sveppanna. Hann styður við ónæmiskerfið, heilsu húðarinnar og almenna vellíðan. Næringarefni: 7% af beta-glúkani, melaníni, öflugum sterólum og triterpenum, svo sem inotodioli, lanosteroli og trametenolic sýru, sem hjálpa líkamanum að berjast gegn sýklum. Bragð: Jarðarbragð, fremur beiskt. Passar rosa vel í… Continue reading Guðdómlegt heitt súkkulaði með chaga – UPPSKRIFT

ASHWAGANDHA. GEGN STREITU, STÍFLEIKA & HEILAÞOKU

Í fyrsta sæti yfir frábærar haust- og vetrarjurtir er hin kraftmikla Ayurveda jurt ashwagandha sem bætir bæði geð og orku en það gerir hún með því að næra taugakerfið og draga úr órólegri vataorku/vetrarorku sem er einmitt orkan sem nú er að taka yfir, eða haust og vetur; kuldinn, þurra loftið og vindarnir. En ofan á það er streita af sama meiði, hin óþægilega birtingarmynd vataorkunnar bætist við vetrartíðina. Því skiptir nú öllu að lægja öldurnar innra með okkur.

LÍKAMSNUDD FRÁ A – Ö

Áttu erfitt með að vakna, hrynur þú í orku um miðjan dag, ertu hvíldarlaus á kvöldin og glaðvakandi þegar þú átt að sofna? Ef svo er getur gott  líkamsnudd á hverjum morgni, allavega í viku eða tvær, gert gæfumuninn. Getið er um góð áhrif daglegs sjálfsnudds undir heitinu abhyanga í hinum 5000 ára gömlu vedísku… Continue reading LÍKAMSNUDD FRÁ A – Ö

HUGLEIÐSLUMARAÞON Í MIÐBORGINNI laugardaginn 20. júlí. Öll velkomin!!

Systrasamlagið í samvinnu við Andaðu og Sumarborgina efnir til hugleiðslumaraþons í miðborginni laugardaginn 20. júlí frá 10-16. Boðið verður upp á nokkrar ólíkar tegundir af hugleiðslu úr mismunandi menningarheimum. Við fáum til liðs við okkur reynda hugleiðslukennara sem munu miðla þekkingu sinni og leiða okkur hver í gegnum sína hugleiðslu. Hugleiðslumaraþonið fer nánar tiltekið fram… Continue reading HUGLEIÐSLUMARAÞON Í MIÐBORGINNI laugardaginn 20. júlí. Öll velkomin!!

L -Theanine er SLAKANDI OG BÆTIR SVEFN

Hvað er L-theanine? L-theanine er amínósýra sem finnst í telaufum. Hún var uppgötvuð af japönskum vísindamönnum árið 1949. Þó að hún sé fyrst og fremst í telaufum er hana líka að finna í ákveðnum tegundum sveppa. Í fæðu finnst hún í mestu magni í grænum telaufum. Samkvæmt japönskum skilgreiningum er L-theanine uppspretta umami, hins einstaka… Continue reading L -Theanine er SLAKANDI OG BÆTIR SVEFN

Published
Categorized as Greinar

FALIN FEGURÐ – HIDDEN BEAUTY – Ljósmyndasýning Thelmu Bjarkar á falinni fegurð í Systrasamlaginu.

Thelma Björk sem er menntaður fatahönnuður, jóga og hugleiðslukennari og jákvæðum sálfræðingur er á sífelldum snúningi í sinni listsköpun og fangar gjarnan það sem er ekki víst að aðrir taki eftir. Í tilefni þess að 21. mars næstkomandi er alþjóðlegur dagur downs höfum við aftur opnað hina frábæru sýningu Falin fegurð í Systrasamlaginu sem vakti… Continue reading FALIN FEGURÐ – HIDDEN BEAUTY – Ljósmyndasýning Thelmu Bjarkar á falinni fegurð í Systrasamlaginu.

SKIPTIR MÁLI AÐ VELJA VÍTAMÍN OG BÆTIEFNI VEL. Jóhanna í Systrasamlaginu svarar spurningum.

Jóhanna Kristjánsdóttir eigandi heilsuhofsins Systrasamlagsins er mikill reynslubolti þegar það kemur að heilsumálum. Hún stofnaði ásamt systur sinni, Systrasamlagið fyrir 11 árum, sem hún segir hafa verið mikið mikla ævintýraför. Áður hafði Jóhanna unnið í Heilsuhúsinu, svo reynslan í heilsubransanum er nú talin í meiri en 3 áratugum.  Hvað myndir þú ráðleggja fólki í vetur?… Continue reading SKIPTIR MÁLI AÐ VELJA VÍTAMÍN OG BÆTIEFNI VEL. Jóhanna í Systrasamlaginu svarar spurningum.