Þótt nafn hennar hafi ekki farið hátt er Indra Devi talin einn áhrifamesti jógi hins vestræna heims. Einstök kona í hópi fjölmargra karlkyns jógaleiðtoga á síðustu öld. Devi er í dag gjarnan nefnd “Mataji” eða fyrsti kvenleiðtogi jógaheimsins. Hún var uppi þegar konur sem stunduðu jóga voru litnar hornauga og jafnvel ennþá gerðar brottrækar úr eigin samfélögum fyrir að iðka jóga (þá sögu má m.a. kynna sér á Yogawoman.tv). Líkt og svo margt annað í veraldarsögunni var jóga upphaflega “sport” hinna efnameiri karlmanna.
Category: Greinar
10 heitustu heilsustraumar ársins 2016
Það hefur sjaldan verið áhugaverðara en nú að vera meðvitaður um strauma og stefnur í heilsumálum. Þar gerast hlutirnir. Hér endurbirtum við 10 heilsustrauma og -stefnur sem við töldum í upphafi árs að myndu ná flugi árið 2016.
Góða skemmtun.
OM GEGN ENNIS- OG KINNHOLUBÓLGUM
Hið forna hljóð OM, upphafshljóð allra hljóða og æðsta mantra jóganna er sannarlega mögnuð. Hún róar hugann og færir okkur inn í núið en hefur líka aðrar mjög áhugaverðar hliðar sem vísindamenn við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi komust að fyrir nokkru. Þeir sem söngla OM reglulega halda nefnilega ennis- og kinnholunum hreinum, segja vísindamennirnir.
BORÐAÐ Í TAKT VIÐ ÁRSTÍÐIRNAR
Allar grænmetis- og ávaxtategundir eiga sér sína árstíð og á þeim tíma eru þær næringarríkari en ella. Það gefur líka auga að það sem vex í túnfætinum stendur upp úr. Það þarf heldur ekki að flytja langar leiðir og veldur þar af leiðandi minni mengun. Árstíðabundin fæða er augljóslega ferskari, næringarríkari og umhverfisvænni.
UM SYSTRASAMLAGIÐ
Systrasamlagið, sem nú er til húsa við Óðinsgötu 1, var stofnað var í 15. júní 2013 við Suðurströnd 10 á Seltjarnarnesi og er að segja má alveg nýtt konsept í verslunar/kaffihúsarekstri á Íslandi. Systrasamlagið er í senn verslun og kaffihús byggt á þeirri hugsjón að víkka út hugmyndina um heilsubúð og færa nær almenningi. Hafa andann alltaf með… Continue reading UM SYSTRASAMLAGIÐ
MANDUKA JÓGADÝNUR & FYLGIHLUTIR
Þeir sem þekkja vel til í jógaheiminum vita að Manduka jógadýnurnar eru besta fjárfestingin sem í boði er í dag. Systrasamlagið býður að jafnaði sex tegundir af Manduka jógadýnum og marga fylgihluti með, eins og jógatöskur, jógahandklæði, jógamottuhaldara, jógabönd, eitthvað við flestra hæfi. Komdu í Systrasamlagið og kynntu þér málið. Og þreifaðu á jógadýnunum.