MÖNTRU MORGNAR Á MIÐVIKUDÖGUM Í MAÍ

Eftir magnaðan vetur ætlar Slökun í borg, fyrir alla, að taka lokahnykkinn á einstaklega fallegu verkefniog efna til Möntru-miðvikudagsmorgna í maí í Systrasamlaginu, þ.e.  daganna 2., 9., 16., 23. og 30. maí.  Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Thelma Björk jógakennari leiðir okkur í gegnum nýja möntru/ hugleiðslu á hverjum miðvikudegi kl. 9.15 til… Continue reading MÖNTRU MORGNAR Á MIÐVIKUDÖGUM Í MAÍ

Published
Categorized as Greinar

SLÖKUN Í BORG MEÐ STRÆTÓ

40 daga hugleiðslan sem nú stendur sem hæst undir merkjum Slökunar í borg fer á ferð og flug föstudaginn 9. mars í orðsins fyllstu merkingu þegar Thelma Björk jógakennari og Systrasamlagið taka Ásinn (leið 1) frá Hlemmi til Hafnarfjarðar og aftur til baka. Hugleiðsluferðalagið með Strætó hefst nánar tiltekið á Hlemmi kl. 14.12 og hefur viðkomu… Continue reading SLÖKUN Í BORG MEÐ STRÆTÓ

Published
Categorized as Greinar

MÖNTRUBÖNDIN SEM ENDAST BEST!

Í Systrasamlaginu fást hin einu sönnu Möntru armbönd eru einföld og elegant armbönd með fínlegu yfirbragði. En um leið djúpum undirtón í gefandi orðum og setningum sem minna á það besta sem lífið hefur fram að færa. Fallegt skart. Hvetjandi áminning. Veita sannarlega innblástur, næra, gefa, skreyta og fegra. Möntruböndin eru úr stáli sem ekki ryðgar og… Continue reading MÖNTRUBÖNDIN SEM ENDAST BEST!

ÁHRIF HUGLEIÐSLU EFTIR LENGD

Jógavísindin hafa skoðað áhrif hugleiðslu í þúsundir ára. Að miklu leyti eru þau vestrænu farin að sjá það sama og jógarnir. Það er um að gera að prófa mismunandi lengd af heilunarhugleiðslunni. Hér eru áhrif hugleiðslunnar á líkama eftir lengd: 3 mín hugleiðsla hefur áhrif á rafsegulsviðið, blóðrásina og stöðugleika blóðsins. 11 mín hugleiðsla hefur… Continue reading ÁHRIF HUGLEIÐSLU EFTIR LENGD

Published
Categorized as Greinar

Thelma Björk jógakennari

Thelma Björk jógakennari um verkefnið SLÖKUN Í BORG: “Ég held að þörfin fyrir slökun og meðvitaða öndun hafi aldrei verið meiri en í dag. Við lifum á tímum sem einkennast af hraða og álagi. Og því mikilvægt að gefa sér tíma til að draga djúpt inn andann og gefa sér leyfi til að slaka. Að… Continue reading Thelma Björk jógakennari

Published
Categorized as Greinar

SLÖKUN Í BORG, fyrir alla

SLÖKUN Í BORG, fyrir alla, samstarfsverkefni Thelmu Bjarkar jógakennara og Systrasamlagsins, verður ýtt úr vör 10. nóvember n.k. í Systrasamlaginu Óðinsgötu 1. Verkefnið, sem standa mun yfir næstu mánuði, miðar að því að fá sem flesta til að slaka á og hugleiða við ólíkar aðstæðum á ólíkum stöðum í borginni. Fyrsta verkefnið er að bjóða… Continue reading SLÖKUN Í BORG, fyrir alla

Published
Categorized as Greinar

ÞITT INNRA BAKTERÍULÍF?

Örlög þjóða velta gjarnan á því hvort melting forsætiráðherra er góð eða slæm – VOLTAIRE

Því meira sem við systur veltum fyrir okkur heilsumálunum þeim mun ljósara verður það í okkar huga að vinveittu bakteríunar í meltingarveginum eru alger grundvöllur góðrar heilsu. Á vefsíðunni Green Med info er að finna samansafn meira en 200 rannsókna sem vísa til 170 sjúkdóma sem hægt væri að meðhöndla m.a. með probiotics, eða góðgerlum. Þetta eru lekur ristill, Celiac sjúkdómurinn, iðrabólga, insúlin ójafnvægi, efnaskiptasjúkdómar, sykursýki, exem, liðvandamál, kvef, flensa, lugnabólga, lifrarsjúkdómar (jafnvel skorpulifur og krabbamein), Epstein-Barr vírusinn, hátt kólesteról og hár blóðþrýstingur, herpes og nú hefur komið fram í fréttum að síþreyta,  kvíði og þunglyndi stafa mjög líklega einnig af völdum lélegrar þarmaflóru. 
 

FÆÐA JÓGANNA!

Eftir því sem jóga vex ásmegin meðal almennings og vísindamanna fjölgar þeim sem hafa áhuga á systurvísindum jógafræðanna, Ayurveda, sem innifelur m.a. hina einu sönnu fæðu jóganna. Í Auyrveda, sem að nokkru hafa verið vísindalega rannsökuð, einkum það sem snýr að lækningajurtum, er að finna heilstætt kerfi og hafsjó upplýsinga um nánast allt á milli… Continue reading FÆÐA JÓGANNA!

SYSTRASAMLAGIÐ FLYTUR 4. MARS

“Já, það styttist óðum í flutninga Systrasamlagsins. Við munum þreyja Þorrann og flytum búferlum af Nesinu þegar Góan stendur sem hæst ,” segir Guðrún Kristjánsdóttir önnur systranna í Systrasamlaginu. Semsé Systrasamlagið er að flytja af Seltjarnarnesinu á Óðinsgötu 1. Flutningur af Nesinu er 4. mars og áætlað er að Óðinsgata 1 opni formlega 11. mars.

FRANKINCENSE ILMKJARNAOLÍAN

Vissir út að þefskyn okkar er beintengt ósjálfráða taugakerfinu, miðju tilfinninga okkar? Þegar þú finnur ilm af vandaðri ilmkjarnaolíu má segja að ilmurinn brjóti sér leið beint upp í heila. Hin skilningavitin 4; sjón, bragð, snerting og heyrn hafa líka fyrstu snertingu við heilastúku áður en þau hreyfa við öðru í líkama okkar. Og þar sem ósjálfráða taugakerfið er jafnframt beintengt þeim hluta heilans sem stjórnar blóðþrýstingi, hjartslætti, minni, streitu, hormónajafnvægi og öndun hafa ilmkjarnaolíur ekki bara áhrif á tilfinningar okkar heldur líka líkama. Jafnvel undraverð áhrif. Frankincense ilmkjarnaolían, sem er af hinu harðgerða Boswellia tré, er merkilegasta dæmið um það.