VANTAR Í ÞIG ALLT OJAS // LÍFSORKU?

Í nútíma vísindum er Ojas útskýrt sem samansafn líkamsvessa og ólíkra peptíða, eins og taugafrumna, hormóna, taugaboðefna og annarra efna sem hafa áhrif á öll kerfi líkamans og viðhalda kjörheilsu mannsins.

HEITUSTU HEILSUTRENDIN 2021. BYLTINGIN ER AÐ HEFJAST

Það er langt því frá að við séum byrjuð að skilja hvaða áhrif 2020 hafði á líf okkar. Eitt er þó víst; heilsan var okkur efst í huga árið 2020. Þetta er árið sem mun örugglega breyta viðhorfi okkar til heilsunnar en vonandi margs annars líka. Margir heilsuspámenn fullyrða að heilsubyltingin sé ekki ennþá hafin.… Continue reading HEITUSTU HEILSUTRENDIN 2021. BYLTINGIN ER AÐ HEFJAST

BLEIKA HLIÐIN Á HJARTANU

Fáir eru sjálfsagt að velta því fyrir sér svona dagsdaglega að hjartað er umlukið poka. Sterkri og sveigjanlegri himnu sem kallast gollurhús. Þótt vestrænir læknar séu afar færir í hjartalækningum vilja austrænu fræðingarnir meina að pokinn utan um hjartað sé í of litlum metum. Gollurhúsið, sem er fíngert og viðkvæmt, hafi margvíslegu hlutverki að gegna.… Continue reading BLEIKA HLIÐIN Á HJARTANU

Published
Categorized as Greinar

LEIT AÐ LJÓSI – sýning Kristínar Dóru í Systrasamlaginu

Kristín Dóra Ólafsdóttir, sem er sannarlega ein af okkar áhugaverðurstu myndlistarkonum, sýnir ný málverk í Boðefnagallerýi Systrasamlagsins á Óðinsgötu 1. Verkin á sýningunni urðu til í samkomubanni og þegar fór að birta til. Því endurspegla þau hugarástand listakonu sem leitar að því fallega og góða þegar útlitið var heldur dökkt. Vegna veirunnar verður ekki formleg… Continue reading LEIT AÐ LJÓSI – sýning Kristínar Dóru í Systrasamlaginu

Published
Categorized as Greinar

GHEE FYRIR GÁFURNAR

Margir sem stúderað hafa jógafræðin vita að ghee er ómissandi þáttur tilverunnar. Ekki bara fyrir líkamann heldur er ghee í bókstaflega vitsmunalegt og andlegt fóður. Í Ayurveda er ghee talið guðleg náttúruafurð, hreinasta afurð heilagra kúa. Nú um stundir er ghee notað í sérlega vinsælan espressodrykk, oft kallaður “Bulletproof” út í heimi en SKOTHELT INDÍGÓKAFFI Í SYSTRASAMLAGINU. Einnig… Continue reading GHEE FYRIR GÁFURNAR

Published
Categorized as Greinar

ÁSTARSORG Í EYJUM Í BOÐEFNAGALLERÍ-inu

Þessa daganna stendur yfir áhugaverð ljósmyndasýning í Boðefnagallerí-i Systrasamlagsins. Sýningin nefnist Ástarsorg í Eyjum og samanstendur af fjórum verkum kvikmyndagerðarkonunnar Elísabetar Elmu.   Elísabet Elma nam ljósmyndun, meðal annarra myndlistaforma, í lýðháskóla á Jótlandi haustið 2009. Í kjölfarið stundaði hún nám í kvikmyndafræði í Háskóla Íslands með kynjafræði til hliðar. Undanförnum árum hefur hún varið í Prag við nám… Continue reading ÁSTARSORG Í EYJUM Í BOÐEFNAGALLERÍ-inu

Published
Categorized as Greinar

KRISTALLINN & VATNIÐ

Þeir sem hafa áhuga á fíngerðari blæbrigðum lífsins vita auðvitað að gimsteinar náttúrunnar, eða kristallar, búa yfir einstökum eiginleikum til draga í sig og miðla orku. Jafnvel vísindamenn hafa sýnt fram á að hægt sé breyta formgerð vatns með heilandi kristöllum (já, og af hverju ganga sum úr?). Þetta vissu Grikkir til forna og nýttu… Continue reading KRISTALLINN & VATNIÐ

HAFRAGRAUTUR ER BESTA ORKAN

Líkt og þegar fitan hvarf svo gott sem úr mataræði okkar munaði mjóu að kornið hyrfi líka. Sem betur fer rataði sannleikurinn aftur til fólksins og kornið í hinum ýmsu myndum fær aftur að njóta sín á matardisknum. Vísindi nútímans hafa sannað að kornið er okkur lífsnauðsynlegt. Eitt af þeim allra mögnuðustu, sem næstum varð… Continue reading HAFRAGRAUTUR ER BESTA ORKAN

SÚPERDRYKKIR Í SYSTRASAMLAGINU

Mögnuð vöruþróun hefur átt sér stað í drykkjarheiminum. Fullyrða má að bylting hafi átt sér stað. Drykkur er líka matur, er slagorð sem er að festa sig í sess og byggir sannarlega ekki á sandi. Fremstir meðal jafningja í þróun framúrskarandi innihaldsríka drykkja er bætiefnaframleiðandinn Virdian, sem setti á markað nokkra drykki með stuttu millibili sem eru hverjir… Continue reading SÚPERDRYKKIR Í SYSTRASAMLAGINU

Published
Categorized as Greinar