Gleðilegt kapha tímabil! Nú er tími faðmlaga, kærleiks og samkenndar en líka þurrar húðar og kvefs!

Vorið er handan hornsins. Nýtt upphaf. Endurfæðing, segja margir. Frost að fara úr jörðu og fræin undirbúa komu sína. Á meðan þetta ástand varir er jörðin þung og blaut og þannig verður hún í fáeinar vikur í viðbót. Það er því ekki af ástæðulausu að vorhreinsun í víðasta skilningi þess orðs er mörgum hugleikin með… Continue reading Gleðilegt kapha tímabil! Nú er tími faðmlaga, kærleiks og samkenndar en líka þurrar húðar og kvefs!

Published
Categorized as Ayurveda

Hvernig getum við verið unglegri lengur?

Húð okk­ar og bein eru það sem birt­ist okk­ur þegar við horf­um í speg­il og líka það sem kynn­ir okk­ur fyr­ir heim­in­um. Öll erum við gang­andi dæmi um áferð húðar, húðlit, lög­un og stærð. Með okk­ar ein­stöku ásynd og lík­ama sem tjá­ir að mörgu leyti hver, eða í það minnsta, hvernig við erum. Vissuð þið… Continue reading Hvernig getum við verið unglegri lengur?

RÁÐ Á TÍMUM FLENSU OG ORKULEYSIS -vítamín, bætiefni, heitt vatn ofl.

Til að fyrirbyggja og takast á við flensuna. Passið vel upp á:
D-vítamín
C-vítamín
Fá sér olífulauf
Góðar olíur
Taka inn bólgeyðandi túrmerk
Pipaarótar- og hvítlaukskraft
Hafa engifer alltaf innan seilingar
Hafa ylliberjahálsúða í handtöskunni, hefur reynst frábærlega þegar þú finnur flensuna, hálsbólguna eða kvefið vera að leggjast á þig.

HVAÐA LÍKAMS/HUGARGERÐ ERT ÞÚ? TAKTU PRÓFIÐ.

[et_pb_section admin_label=“section“] [et_pb_row admin_label=“row“] [et_pb_column type=“4_4″][et_pb_text admin_label=“Text“] Dosha próf greina niður hvaða líkams / hugargerð þú ert samkvæmt indversku lífsvísindunum, ayurveda. Ertu vata, pitta eða kapha? Þetta gæti verið gott að vita svo þú megir finna leið til að láta þér líða betur með einföldum ráðum. Dosurnar þrjár, vata (eter og loft), pitta (eldur og… Continue reading HVAÐA LÍKAMS/HUGARGERÐ ERT ÞÚ? TAKTU PRÓFIÐ.

OLÍA Í NAFLA FYRIR HÚÐ OG MELTINGU

Nú þegar margir iðka sjálfsnudd / Abhyanga, hafa lært að brúka tungusköfu, púlla olíumunnskol og þurrbursta líkamann, er gott til þess að vita að vísindi lífsins hafa upp á margt fleira áhugavert að bjóða. Naflaolíunudd er loks komið upp á yfirborðið og hefur verið talsvert í umræðunni að undanförnu. Tískutímaritin Cosmopolitan og Harper ´s BAZAAR hafa bæði birt greinar… Continue reading OLÍA Í NAFLA FYRIR HÚÐ OG MELTINGU

KRYDDAÐUR MORGUNVERÐAR EPLAGRAUTUR

Hér kemur klassískur morgunverðargrautur fyrir þá sem vilja fara lauflétt inn í daginn. Ávextir, eins og epli, eru mun auðmeltari þegar þeir eru soðnir, sérstaklega þegar heldur kalt er úti. Það að byrja morguninn á steiktu epli byggir upp matarlyst fyrir hádegismatinn, örvar hægðir, eykur orku og er um leið seðjandi og nærandi. Eplagautur sem… Continue reading KRYDDAÐUR MORGUNVERÐAR EPLAGRAUTUR

ÞREYTTAR NÝRNAHETTUR ÓGNA HEILSU MANNSINS

Nýrnahettuþreyta (orð sem margir læknar voru mjög lengi að meðtaka) er talin ein af heilsuógnum nútímamannsins og afleiðingar hennar eru margskonar. Í dag hafa allmargir sérfræðingar tengt nýrnahettuþreytu við afleiðingar áfalla (misalvarlegra, sem fleiri burðast með en margur gerir sér grein fyrir). Margir tengja nýrnahetturþreytu við þetta óendanlega orkuleysi og orkumissi. Birtingamyndin er þó líka… Continue reading ÞREYTTAR NÝRNAHETTUR ÓGNA HEILSU MANNSINS

LÍFSORKAN & VÍSINDIN. Hvaðan fær manneskjan rafmagnið?

Flest tengjum við orku við ljós, hita og rafmagnið heima hjá okkur. En er einhver orka þarna úti sem gefur manneskjunni rafmagn? Það er umdeilt en kíkjum aðeins á málin.  Í gegnum söguna hafa trúarbrögð eða heimsspeki eins og hindúatrú, búddismi og lækningakerfi á borð við hefðbundna kínverska alþýðulæknisfræði (TCM) vísað til lífsnauðsynlegrar lífsorku sem… Continue reading LÍFSORKAN & VÍSINDIN. Hvaðan fær manneskjan rafmagnið?

VERTU SNILLINGUR Í NARTI og NJÓTTU ÞESS AÐ NARTA.

Flest erum við meistarar í fjölbeitingu eða í því að múltítaska. Nart er drjúgur partur af þeim lífsstíl. Oft nörtum við í það sem hendi er næst sem getur verið allt frá skyndibitum til þeytinga og frá orkustykkjum til nammis. Þetta gerum við auðvitað til að halda orku svo við náum að gera allt sem… Continue reading VERTU SNILLINGUR Í NARTI og NJÓTTU ÞESS AÐ NARTA.

Published
Categorized as Ayurveda