ERTU VATA, PITTA EÐA KAFA?

Það komst í heimsfréttirnar þegar forsætisráðherra Indlands stofnaði sérstakt ráðuneyti sem hann tileinkar jóga og hinni fornu Ayurvedísku lækningahefð. Það má því með sanni segja að Indverjar séu fyrstir til að stofna “óhefðbundið” heilbrigðisráðuneyti. Með því vill leiðtoginn styrkja þessi 5000 ára gömlu reynsluvísindi sem njóta vaxandi vinsælda og eru ennþá stunduð um allan heim. Líklega hafa… Continue reading ERTU VATA, PITTA EÐA KAFA?

BRJÓSTANUDD & LÍFSORKAN

Í flestum tegundum vestræns nudd er ekki til siðs að brjóst kvenna séu nudduð. Það breytir engu um það að brjóst kvenna eru oftast það svæði líkamans sem þarf mest á nuddi að halda. Vandað brjóstanudd hreinsar óhreinindi í gegnum sogæðakerfið, dregur úr vekjum og tilfinningaspennu og ýtir undir að lífsorkan flæði um líkamann. Og… Continue reading BRJÓSTANUDD & LÍFSORKAN

ER LJÓMINN AÐ HVERFA?

Aktív­ist­inn og jóga­kenn­ar­inn Shi­va Rea er mögnuð kona og eitt mest áber­andi and­lit jóga­heims­ins. Það lögðu því marg­ir við hlust­ir þegar hún upp­lýsti að hún hefði nærri brennt upp lífs­vökva sín­um. Ástæðan? Hún gerði alltaf sömu jógaæf­ing­an­ar án til­lits til árstíða eða breyt­inga í lífi henn­ar. Þá kynnt­ist hún Ayur­veda sem um­bylti sýn henn­ar á… Continue reading ER LJÓMINN AÐ HVERFA?

BOÐEFNABRUNNURINN

Við eigum máske ekki peningatré en það má sannarlega segja að innra með okkur vaxi hamingjutré. Dópamín, serótónín, oxytocin og endorfín skipa þann dásamlega kvartett sem heldur okkur réttu megin í lífinu. Margt getur haft áhrif á virkni þessarra boðefna. Líka við sjálf. Hvað við gerum og borðum. Fremur en að vera í farþegasætinu, eru til… Continue reading BOÐEFNABRUNNURINN

ÞITT INNRA BAKTERÍULÍF?

Örlög þjóða velta gjarnan á því hvort melting forsætiráðherra er góð eða slæm – VOLTAIRE

Því meira sem við systur veltum fyrir okkur heilsumálunum þeim mun ljósara verður það í okkar huga að vinveittu bakteríunar í meltingarveginum eru alger grundvöllur góðrar heilsu. Á vefsíðunni Green Med info er að finna samansafn meira en 200 rannsókna sem vísa til 170 sjúkdóma sem hægt væri að meðhöndla m.a. með probiotics, eða góðgerlum. Þetta eru lekur ristill, Celiac sjúkdómurinn, iðrabólga, insúlin ójafnvægi, efnaskiptasjúkdómar, sykursýki, exem, liðvandamál, kvef, flensa, lugnabólga, lifrarsjúkdómar (jafnvel skorpulifur og krabbamein), Epstein-Barr vírusinn, hátt kólesteról og hár blóðþrýstingur, herpes og nú hefur komið fram í fréttum að síþreyta,  kvíði og þunglyndi stafa mjög líklega einnig af völdum lélegrar þarmaflóru. 
 

BORÐAÐ Í TAKT VIÐ ÁRSTÍÐIRNAR

Allar grænmetis- og ávaxtategundir eiga sér sína árstíð og á þeim tíma eru þær næringarríkari en ella. Það gefur líka auga að það sem vex í túnfætinum stendur upp úr. Það þarf heldur ekki að flytja langar leiðir og veldur þar af leiðandi minni mengun. Árstíðabundin fæða er augljóslega ferskari, næringarríkari og umhverfisvænni.