SPIRITUAL GANGSTER

Þetta byrjaði allt með einum bol og varð að hreyfingu. Jógar, íþróttamenn, listamenn, tónlistarmenn um víða veröld vildu hanna fatalínu með jákvæðum orðum sem lyftu upp víbríngnum í veröldinni og ýtti undir þakklæti, jákvæðni, örlæti, hugrekki, góðmennsku, endurgjöf og teningar við hvert annað. Með það að markmiði allir hafi rétt á því að vera glaðir,… Continue reading SPIRITUAL GANGSTER

WILD GRACE. FERSK NÁLGUN Í SYSTRASAMLAGINU

  Stofnandi Wild Grace, Kim Prenteau, hefur hannað magnaða húðlínu, sem færir húðinni aðeins það besta og nákvæmasta sem náttúran hefur upp á að bjóða. Og alls ekki það sama fyrir alla. Hugmyndafræði hennar og bakgrunnur liggur í ayurvedafræðunum (indversku lífsvísindunum) þar sem allt snýst um hárnákvæmar samsetningar réttra lækningajurta og olía þegar um er… Continue reading WILD GRACE. FERSK NÁLGUN Í SYSTRASAMLAGINU

VÍTAMÍN & BÆTIEFNI sem styðja við geðheilsu rjúka út!

2020 var streituvaldandi en 2021 virðist ekki síður ætla að taka á Íslandi og í víðri veröld. Þegar er vitað að veiran hefur leitt til aukinnar sókn í geðheilbrigðisþjónustu í öllum aldurshópum. Að sama skapi hafa fleiri sóst eftir vítamínum og bætiefnum sem styðja við geðheilsuna. Skýrsla Coherent Market Insights gerir fyrir 8,5% vaxtarhraða á heila- og… Continue reading VÍTAMÍN & BÆTIEFNI sem styðja við geðheilsu rjúka út!

NAILBERRY – FYRIR HEILSUNA OG HÁTÍSKUNA

L’Oxygéné línan frá nýju samstarfsfyrirtæki Systrasamlagsins, Nailberry, eru sannkölluð lúxus naglalökk. Þau hleypa í gegn raka og súrefni. Eru eiturefnalaus, vegan, næra, anda, endast og þykja framúrskarandi smart. Fagfólkið keppist um á dásama Nailberry L’Oxygéné. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun “cruelty free” og það má næstum borða þau en við mælum ekki með því.

MÖNTRUBÖNDIN SEM ENDAST BEST!

Í Systrasamlaginu fást hin einu sönnu Möntru armbönd eru einföld og elegant armbönd með fínlegu yfirbragði. En um leið djúpum undirtón í gefandi orðum og setningum sem minna á það besta sem lífið hefur fram að færa. Fallegt skart. Hvetjandi áminning. Veita sannarlega innblástur, næra, gefa, skreyta og fegra. Möntruböndin eru úr stáli sem ekki ryðgar og… Continue reading MÖNTRUBÖNDIN SEM ENDAST BEST!

MATSEÐILL

Matseðill Systrasamlagsins samanstendur af ljúfum og hollum þeytingum, hafragraut, morgunverðarskálum, súrdeigssamlokum, opnum súrdeigsssamlokum, skotum, drykkjum, hollustubitum og mörgu öðru. Allt meira og minna unnið úr lífrænu gæðahráefni, m.a. frá Kaju organics, Rude Health, Kvikun, Bíóbú, Bíona og Sandholti, svo nokkur dæmi séu nefnd. 

FRANKINCENSE ILMKJARNAOLÍAN

Vissir út að þefskyn okkar er beintengt ósjálfráða taugakerfinu, miðju tilfinninga okkar? Þegar þú finnur ilm af vandaðri ilmkjarnaolíu má segja að ilmurinn brjóti sér leið beint upp í heila. Hin skilningavitin 4; sjón, bragð, snerting og heyrn hafa líka fyrstu snertingu við heilastúku áður en þau hreyfa við öðru í líkama okkar. Og þar sem ósjálfráða taugakerfið er jafnframt beintengt þeim hluta heilans sem stjórnar blóðþrýstingi, hjartslætti, minni, streitu, hormónajafnvægi og öndun hafa ilmkjarnaolíur ekki bara áhrif á tilfinningar okkar heldur líka líkama. Jafnvel undraverð áhrif. Frankincense ilmkjarnaolían, sem er af hinu harðgerða Boswellia tré, er merkilegasta dæmið um það.

OM GEGN ENNIS- OG KINNHOLUBÓLGUM

Hið forna hljóð OM, upphafshljóð allra hljóða og æðsta mantra jóganna er sannarlega mögnuð. Hún róar hugann og færir okkur inn í núið en hefur líka aðrar mjög áhugaverðar hliðar sem vísindamenn við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi komust að fyrir nokkru. Þeir sem söngla OM reglulega halda nefnilega ennis- og kinnholunum hreinum, segja vísindamennirnir.

 

MANDUKA JÓGADÝNUR & FYLGIHLUTIR

Þeir sem þekkja vel til í jógaheiminum vita að Manduka jógadýnurnar eru besta fjárfestingin sem í boði er í dag. Systrasamlagið býður að jafnaði sex tegundir af Manduka jógadýnum og marga fylgihluti með, eins og jógatöskur, jógahandklæði, jógamottuhaldara, jógabönd, eitthvað við flestra hæfi. Komdu í Systrasamlagið og kynntu þér málið. Og þreifaðu á jógadýnunum.