Fáar ef nokkur sýning í Boðefnagallerýi Systrasamlagsins vakti viðlíka athygli og sýning myndlistarkonunnar Kristínar Dóru Ólafsdóttir, Leit að ljósi, sem yljaði mörgum Systrasamlaginu árið 2020 og seldist upp á skömmum tíma. Nú horfir allt til betri vegar og við fáum aftur þessa frábæru listakonu í Systrasamlagið með spánný verk. Sýningin sem nefnist Gott & blessað… Continue reading GOTT & BLESSAÐ. Myndlistarsýning Kristínar Dóru stendur til 15. ágúst
Category: Almennt
HAFRAGRAUTUR ER BESTA ORKAN
Líkt og þegar fitan hvarf svo gott sem úr mataræði okkar munaði mjóu að kornið hyrfi líka. Sem betur fer rataði sannleikurinn aftur til fólksins og kornið í hinum ýmsu myndum fær aftur að njóta sín á matardisknum. Vísindi nútímans hafa sannað að kornið er okkur lífsnauðsynlegt. Eitt af þeim allra mögnuðustu, sem næstum varð… Continue reading HAFRAGRAUTUR ER BESTA ORKAN
ENGIFER VIÐ OFFITU?
Flestir vita að engifer er frábær lækningajurt með mikla sögu. Fáa óraði fyrir að vísindi nútímans væru í þann mund að leysa úr læðingi sönnun þess að engifer er líklega besta lausnin gegn offitufaraldrinum og tengdum sjúkdómum sem nú geysa um allan heim. Vitað er fyrir að engifer er bólgueyðandi, verkjastillandi, góður fyrir meltinguna og… Continue reading ENGIFER VIÐ OFFITU?
FÆÐA JÓGANNA!
Eftir því sem jóga vex ásmegin meðal almennings og vísindamanna fjölgar þeim sem hafa áhuga á systurvísindum jógafræðanna, Ayurveda, sem innifelur m.a. hina einu sönnu fæðu jóganna. Í Auyrveda, sem að nokkru hafa verið vísindalega rannsökuð, einkum það sem snýr að lækningajurtum, er að finna heilstætt kerfi og hafsjó upplýsinga um nánast allt á milli… Continue reading FÆÐA JÓGANNA!
SYSTRASAMLAGIÐ FLYTUR 4. MARS
“Já, það styttist óðum í flutninga Systrasamlagsins. Við munum þreyja Þorrann og flytum búferlum af Nesinu þegar Góan stendur sem hæst ,” segir Guðrún Kristjánsdóttir önnur systranna í Systrasamlaginu. Semsé Systrasamlagið er að flytja af Seltjarnarnesinu á Óðinsgötu 1. Flutningur af Nesinu er 4. mars og áætlað er að Óðinsgata 1 opni formlega 11. mars.
MATSEÐILL
Matseðill Systrasamlagsins samanstendur af ljúfum og hollum þeytingum, hafragraut, morgunverðarskálum, súrdeigssamlokum, opnum súrdeigsssamlokum, skotum, drykkjum, hollustubitum og mörgu öðru. Allt meira og minna unnið úr lífrænu gæðahráefni, m.a. frá Kaju organics, Rude Health, Kvikun, Bíóbú, Bíona og Sandholti, svo nokkur dæmi séu nefnd.
UM SYSTRASAMLAGIÐ
Systrasamlagið, sem nú er til húsa við Óðinsgötu 1, var stofnað var í 15. júní 2013 við Suðurströnd 10 á Seltjarnarnesi og er að segja má alveg nýtt konsept í verslunar/kaffihúsarekstri á Íslandi. Systrasamlagið er í senn verslun og kaffihús byggt á þeirri hugsjón að víkka út hugmyndina um heilsubúð og færa nær almenningi. Hafa andann alltaf með… Continue reading UM SYSTRASAMLAGIÐ